Hressandi námskeið fyrir píanókennara!

Er gaman að koma í píanótíma til þín?

Hressandi námskeið og samvera fyrir píanókennara yngri barna!

Hagnýtt – skapandi – skemmtilegt – samvera – spjall.

  • Breyttir tímar – breyttir kennsluhættir
  • Uppbrot í kennslustundum – leikir og þrautir
  • Spuni sem allir geta kennt
  • Nemendur með sérþarfir
  • Bókarlaus byrjendakennsla
  • Samspil fyrir nemendur sem nálgast grunnpróf
  • Nótnalestur í sinni smæstu mynd
  • Kennsluskipulag
  • Kynning á námsefni sem auðgar kennsluna

Námskeiðið fer fram í Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi, Eyravegi 9, laugardaginn 10.okt. kl.10 – 15.

Dagskrá:

  • Kl.10:00 – 10:30 Hittumst á Konungskaffi í nýja miðbænum á Selfossi, kynnumst og eigum samfélag.
  • Kl.10:30 – 12:30 Námskeið í tónlistarskólanum.
  • Kl.12:30 – 13:30 Borðum og spjöllum á Kaffi krús, 20% afsláttur af matseðli.
  • Kl.13:30 – 15:00 Námskeið í tónlistarskólanum.

Kostnaður kr.50.000 – fæst endurgreiddur fyrir félagsmenn KÍ og FÍH.

10 sæti, fyrstur kemur, fyrstur fær.

Skráðu þig og ég sendi þér tölvupóst með greiðsluupplýsingum.