
Ég heiti Kolbrún Berglind Grétarsdóttir og er píanókennari við Tónlistarskóla Árnesinga. Ég lauk tónmenntakennara- og kórstjórnarprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1996 og píanókennaraprófi frá sama skóla árið 2001. Ég lauk meistaragráðu frá Listaháskóla Íslands í söng- og hljóðfærakennslu árið 2024. Þar fléttaðist kennslureynsla mín saman við fræðasamfélagið sem mótaði með mér farveg fyrir lifandi píanókennslu þar sem þarfir nemandans eru í fyrirrúmi.
Ég hef komið víða við í tónlistarkennslu, en fyrir utan píanó- og suzukipíanókennslu hef ég kennt á þverflautu, blokkflautu og tónfræði, auk þess að stýra blokkflautusveit, blásarasveit og barnakór. Ég hef haldið tónlistarnámskeið fyrir börn og unnið með börnum með þroskaskerðingar, einhverfu, Downs-heilkenni, kjörþögli og námsörðugleika.
Ég hef verið gestakennari við Listaháskólann og starfað í tónlistar- og grunnskólum víða um land. Einnig var ég organisti við litla kirkju í nokkur ár, spilaði með lúðrasveitum og var félagi í Mótettukór Hallgrímskirkju.
Tónlist hefur fylgt mér frá blautu barnsbeini í margs konar mynd. Mér er annt um að hvert barn fái rými til að leika, skapa og tjá sig í gegnum hljóðfærið.