Meðmæli

Nemandi 1 við LHÍ:
Ég heillaðist af ástríðu og fagmennsku Kolbrúnar í því að hlúa að eðlislægri sköpunargáfu barna. Ég kom út úr námskeiðinu með verkfærakistu fulla af leikjum og „trixum“ fyrir börn með alls kyns ólíka styrkleika og þarfir. Ég gat strax farið að nota það sem ég lærði til að bæta mína eigin kennslu og tengslin við nemendur mína. Kolbrún býr yfir mikilli reynslu og mörgum hugmyndum til að rækta tónlistaráhuga barna og hún notar barnvænar leiðir til að vinna með flókin tónlistarhugtök.

Nemandi 2 við LHÍ:
Kennsla Kolbrúnar sýndi mér að með góðu skipulagi, stuðningsríku umhverfi og persónumiðaðri þjálfun er hægt að kenna hverjum sem er á píanó!

Nemandi 3 við LHÍ:
Áður en ég sótti námskeiðið hjá Kolbrúnu gerði ég mér ekki grein fyrir mikilvægi og í raun nauðsyn leikja í píanókennslu barna. Ég er byrjaður að nýta það sem ég lærði og sé strax mun á áhuga nemenda og hversu vel þau ná námsefninu.