Árið 2024 lauk ég meistaranámi við listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Ritgerðin heitir Er hægt að kenna þessu barni tónlist? Mikilvægi nærandi og skemmtilegs kennsluumhverfis.
Verkið er vísir að skapandi kennslubók — eins konar forskóli — fyrir 4–6 ára byrjendur í píanóleik. Barnið kynnist hljóðfærinu í litlum skrefum, með huga og höndum, í gegnum leik, sköpun, spuna og eigin tónsmíðar. Jafnframt er unnið með hrynlestur, nótnalestur og tengingu hljómborðs og nótnaskriftar.
Ritgerðin er unnin í anda starfendarannsókna og fléttar saman rúmlega tuttugu ára kennslureynslu og fræðilegan bakgrunn. Kjarninn er sá að öruggt, glaðlegt umhverfi og góður grunnur styrkja sjálfsmynd barnsins og nýtast jafnt í klassísku sem rytmísku námi.
Hægt er að lesa ritgerðina á Skemmunni: skemman.is/handle/1946/48194